Var Komintern andvígt stofnun Sósíalistaflokksins?
##doi.readerDisplayName##:
Útdráttur
Jón Ólafsson heimspekingur telur sig hafa fundið heimild fyrir því, að Komintern hafi verið andvígt stofnun Sósíalistaflokksins. Hún er minnisblað eins starfsmanns Kominterns frá sumrinu 1938. Þór Whitehead sagnfræðingur andmælir því með þeim rökum, að þetta hafi ekki verið opinber samþykkt Kominterns, auk þess sem allar aðrar heimildir bendi til þess, að stofnunin hafi verið gerð með samþykki Kominterns. Fram er komin ný heimild, heillaóskir í bréfi frá Michal Wolf, öðrum ritara Alþjóðasambands ungra kommúnista og varamanni í framkvæmdastjórn Kominterns, til Æskulýðsfylkingarinnar við stofnun hennar haustið 1938. Wolf varð síðar varnarmálaráðherra Ungverjalands undir nafninu Mihály Farkas og var eindreginn stalínisti. Þessi heimild eyðir öllum vafa um það, að stofnun Sósíalistaflokksins var gerð með samþykki Kominterns.Niðurhal
Útgefið
15.12.2009
Tölublað
Kafli
Erindi og greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.