Rannsókn á tengslum kynferðis og aldurs dómara og lögmanna við úrslit dómsmála í héraði

Höfundar

  • Valgerður Sólnes
  • Guðbjörg Linda Rafnsdóttir
  • Benedikt Bogason
  • Kjartan Vífill Iversen

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2022.18.1.5

Lykilorð:

Aldur, dómarar, dómstólar, kynferði, lögmenn.

Útdráttur

Hér á landi hefur ekki verið rannsakað hvort og þá hvaða tengsl séu á milli kynferðis og aldurs dómara og málflytjenda annars vegar og niðurstaðna dómsúrlausna hins vegar. Rannsóknin, sem er þverfræðileg á sviði félagsfræði og lögfræði, laut að því að greina upplýsingar um kynferði og aldur dómara og málflytjenda í þeim dómsúrlausnum í einkamálum, sem kærðar hafa verið eða áfrýjað til Hæstaréttar og Landsréttar, á tíu ára tímabili. Rannsakað var hvort tengsl væru á milli þessara þátta og úrslita dómsmálanna. Rannsóknin gefur til kynna að kyn lögmanna hafi þýðingu, óháð kyni dómara, og að kvenkyns málflytjendur til sóknar og varnar auki líkur á að mál falli umbjóðendum þeirra í vil. Aldur dómara virðist jafnframt hafa þýðingu fyrir úrslit mála þannig að eldri dómarar (50 ára og eldri) séu líklegri til að dæma varnaraðila í vil, óháð öðrum þáttum. Enga samvirkni á milli kyns dómara og lögmanna má á hinn bóginn finna í gögnunum sem rannsökuð voru. Það er von okkar að rannsóknarniðurstöðurnar gagnist umræðunni um starfsemi dómstóla og jafnrétti og hvetji til frekari rannsókna á því sviði.

Um höfund (biographies)

  • Valgerður Sólnes
    Dósent, Lagadeild Háskóla Íslands.
  • Guðbjörg Linda Rafnsdóttir
    Prófessor, félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands.
  • Benedikt Bogason
    Prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands.
  • Kjartan Vífill Iversen
    Rannsóknamaður, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

23.06.2022

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Svipaðar greinar

1-10 af 140

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)