Einelti og líðan starfsfólks sveitarfélaga á tímum efnahagsþrenginga

Höfundar

  • Hjördís Sigursteinsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2013.9.2.9

Lykilorð:

Einelti, vinnustaður, félagslegur stuðningur, ánægja með stjórnun, löngun til að hætta í starfi.

Útdráttur

Markmið þessarar rannsóknar er að skoða einelti og líðan á vinnustað meðal starfsfólks sveitarfélaga í kjölfar efnahagshrunsins hér á landi 2008. Rafrænn spurningalisti var í þrígang lagður fyrir starfsfólk 20 sveitarfélaga með þekkt netfang, fyrst í byrjun árs 2010, svo á vordögum 2011 og að lokum í byrjun árs 2013. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að einelti er til staðar meðal starfsfólksins og það hefur aukist milli fyrirlagna spurningalistans. Jafnframt má sjá að félagslegur stuðningur á vinnustað fer minnkandi sem og ánægja með stjórnun vinnustaðarins og löngun til að hætta í starfi eykst. Þolendur eineltis telja sig fá minni félagslegan stuðning en þeir sem ekki hafa orðið fyrir einelti á vinnustað, þeir eru ekki eins ánægðir með stjórnun vinnustaðarins og hafa meiri löngun til að hætta í starfi. Hægt er að álykta út frá hlutfalli þeirra sem orðið hafa fyrir einelti á vinnustað að einelti sé orðið alvarlegt vandamál á vinnustöðum íslenskra sveitarfélaga. Ástæða er til þess að staldra aðeins við og leitast við að finna rót vandans í því augnamiði að uppræta einelti á vinnustað. Sérstaklega í ljósi þess að rannsóknir hafa sýnt það að einelti hefur alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu og líðan þolenda og er talið meiri skaðvaldur heldur en öll önnur vinnutengd streita.

Um höfund (biography)

  • Hjördís Sigursteinsdóttir
    Aðjúnkt, Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri og doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

15.12.2013

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Svipaðar greinar

1-10 af 151

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.