Þrengsli í leikskólum

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2024.33.7

Lykilorð:

leikskólar, rými, þrengsli, valdaleysi

Útdráttur

Áhyggjur af því að rými barna í leikskólum sé of lítið urðu til þess að ákveðið var að rannsaka það. Mældar voru 38 leikskóladeildir í 30 leikskólum á höfuðborgarsvæðinu og tekin viðtöl við deildarstjóra í þriðjungi skólanna. Hér er gerð grein fyrir völdum hlutum rannsóknarinnar. Í fyrsta lagi er sagt frá þróun reglna um rými í leikskólum. Í öðru lagi er gerð grein fyrir niðurstöðum mælinganna í ofannefndri rannsókn. Í þriðja lagi er greint frá niðurstöðum úr viðtölunum við deildarstjórana um það hvernig rýmið er notað og hvaða áhrif það hefur á starfsaðstæður þeirra. Niðurstöður eru meðal annars að í leikskólum á Íslandi eru mikil þrengsli og þótt deildarstjórar, allt konur, sýni hugkvæmni í nýtingu rýmisins upplifi þær sig valdalausar og vanmáttugar gagnvart aðstæðum. Niðurstöðurnar undirstrika að gera þurfi breytingar á aðstæðum barna í leikskólum, ekki síst að fækka þegar í stað börnum á hverri deild og skapa þannig meira rými og betra leikskólaumhverfi.

Um höfund (biographies)

  • Hörður Svavarsson

    Hörður Svavarsson (hordur@adalthing.is) er skólastjóri við leikskólann Aðalþing. Hann lauk prófi sem leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands árið 1987, B.Ed.-gráðu í leikskólafræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 2005 og MA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2022. Meðal núverandi rannsóknarverkefna er félagsleg, efnahagsleg og vistfræðileg þróun sjálfbærni leikskóla. Í því samhengi hefur hann fjallað um rými og aðstæður barna, en jafnframt lýðræðislegt, inngildandi og kynjað skólastarf

  • Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Ingólfur Ásgeir Jóhannesson (ingo@hi.is) er prófessor emeritus við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann lauk BA-prófi 1979 og cand.mag.-prófi 1983 í sagnfræði, auk kennslufræði til kennsluréttinda 1980, öllu frá Háskóla Íslands, og doktorsprófi í menntunarfræðum frá Wisconsin-háskóla í Madison 1991. Hann hefur meðal annars rannsakað menntastefnu, störf kennara og kyngervi og menntun.

Niðurhal

Útgefið

2024-10-30