„Leyfum börnunum að blómstra þar sem þau hafa styrkleikana“. Reynsla foreldra af stuðningi við börn með námserfiðleika

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2022.31.2

Lykilorð:

námserfiðleikar barna, skóli án aðgreiningar, stuðningur, samstarf heimila og skóla

Útdráttur

Hér er sagt frá niðurstöðum rannsóknar á upplifun og reynslu foreldra barna sem stríða við námserfiðleika í grunnskólum og hafa verið greind með ADHD, einhverfu, almenna og sértæka námserfiðleika, tilfinninga- og félagslega erfiðleika og tourette-heilkenni. Rannsóknin er hluti af stærra rannsóknarverkefni sem snýst um stuðning við grunnskólanemendur með námserfiðleika. Markmið þessa hluta rannsóknarinnar var að kanna reynslu foreldra af þeim stuðningi sem börnum þeirra stendur til boða innan skóla. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hver er upplifun og reynsla foreldra barna með námserfiðleika af stuðningi innan grunnskóla? Tekin voru fimm rýnihópaviðtöl við foreldra. Alls tóku 22 foreldrar þátt. Niðurstöður sýna ánægju foreldra með ýmsa þætti í skólastarfinu, svo sem einstaklingsnámskrá, námsver og hvernig unnið var með aðlögun náms til að mæta þörfum barnanna. Foreldrar voru aftur á móti ekki eins ánægðir með samskiptin milli skóla og heimilis, álag vegna heimanáms og framboð á námsefni fyrir börnin. Heildarniðurstöður sýna að foreldrar kalla eftir bættum samskiptum milli skóla og heimila, auknum stuðningi fyrir börnin og breyttum áherslum í námi.

Um höfund (biographies)

  • Ingibjörg Karlsdóttir, Barna- og unglingageðdeild LSH
    Ingibjörg Karlsdóttir (ingibjka@landspitali.is) er félagsráðgjafi MPH á Barna- og unglingageðdeild Landspítala. Hún lauk BA-prófi í uppeldisfræði og félagsráðgjöf ásamt starfsréttindanámi í félagsráðgjöf árið 1989 frá Háskóla Íslands og meistaraprófi í lýðheilsufræði frá Háskólanum í Reykjavík 2012. Hún fékk sérfræðiréttindi í félagsráðgjöf á heilbrigðissviði 2014. Hún er höfundur bókarinnar ADHD og farsæl skólaganga sem gefin var út af Námsgagnastofnun 2013. Rannsóknarsvið höfundar snúa að skólafélagsráðgjöf, börnum með námslegar og félagslegar áskoranir og áhrifum mataræðis á geðheilsu.
  • Sigrún Harðardóttir, Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið
    Sigrún Harðardóttir (sighar@hi.is) er dósent við félagsráðgjafardeild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Hún lauk BA-prófi í uppeldisfræði og félagsráðgjöf árið 1988, starfsréttindanámi í félagsráðgjöf árið 1989, námi í náms- og starfsráðgjöf árið 1993, uppeldis-og kennslufræði árið 1994, meistaraprófi í félagsráðgjöf (MSW) árið 2005, doktorsprófi í félagsráðgjöf árið 2014 og diplómanámi í kennslufræði háskóla árið 2017, öllu frá Háskóla Íslands. Auk þess lauk hún diplómanámi í faghandleiðslu frá University of Derby árið 2021. Rannsóknarsvið höfundar snúa að skólafélagsráðgjöf, sálfélagslegri líðan nemenda og úrræðum innan skóla.

Niðurhal

Útgefið

2022-08-04