Þegar börnin ráða ferðinni: Um þátttöku barna í vettvangsferðum í leikskóla

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2026/7

Lykilorð:

þátttaka barna, vettvangsferðir, starfsendarannsókn, lýðræði í leikskóla

Útdráttur

Í þessari grein er fjallað um starfendarannsókn sem framkvæmd var í einum leikskóla með það að markmiði að efla þátttöku barna í vettvangsferðum. Rannsóknin beinir sjónum að hvernig kennari getur með ígrundun, endurskoðun á eigin starfsháttum og markvissum aðgerðum skapað raunveruleg tækifæri til þátttöku og áhrifa barna í samræmi við lýðræðislegar áherslur í leikskólastarfi. Rannsóknin var gerð á elstu deild leikskólans skólaárið 2024–2025 og tók til 15 barna og starfsfólks deildarinnar. Markmiðið var að þróa nýtt fyrirkomulag vettvangsferða þar sem börnin hefðu áhrif á undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu í stað þess að fylgja fyrir fram ákveðnu skipulagi fullorðinna. Gögnum var safnað með rannsóknardagbók, þátttökuathugunum, rýnihópaviðtölum og óformlegum samtölum. Greining gagna byggði á þemagreiningu og þátttökustiga Harts sem nýttur var sem viðmið til að meta þróun þátttöku barnanna. Niðurstöður sýna að þegar kennarinn skapaði aðstæður þar sem börnin gátu haft áhrif á ákvarðanir jókst áhugi þeirra, virkni, sjálfstraust og tenging við ferðina. Jafnframt lærði kennarinn að sveigjanleiki, opnari samskipti og athygli á óyrta tjáningu barna eru lykilþættir í að auka þátttöku þeirra. Rannsóknin gefur til kynna að vettvangsferðir geti breyst úr fyrir fram mótuðum viðburðum yfir í lifandi rannsóknarferli þar sem börn og kennarar eru samrannsakendur. Ályktanir sem af rannsókninni eru dregnar undirstrika að með því að hægja á, hlusta og treysta börnum fyrir raunverulegu vali má efla forvitni, ábyrgð og sköpun þeirra.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biographies)

  • Margrét Sæmundsdóttir

    Margrét Sæmundsdóttir (margret.saemundsdottir@reykjavik.is) starfar sem kennari og aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Rofaborg og hefur sinnt þar kennslu-, sérkennslu- og stjórnunarstörfum frá árinu 2017. Hún lauk BA-prófi í þroskaþjálfafræðum frá Háskóla Íslands árið 2021 og M.Ed.-prófi í menntunarfræðum leikskóla árið 2025 frá sama háskóla. Þessi grein er byggð á meistararannsókn hennar sem hún vann undir leiðsögn Önnu Magneu Hreinsdóttur.

  • Anna Magnea Hreinsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Anna Magnea Hreinsdóttir (amh@hi.is) er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún var leikskólastjóri í mörg ár, leikskólafulltrúi og fræðslustjóri. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og veitt skólum ráðgjöf. Rannsóknir hennar tengjast forystu og stjórnun, námskrárgerð og innra mati leikskóla með áherslu á lýðræðislega starfshætti. Þá hefur hún lagt áherslu á sjónarmið og þátttöku barna í rannsóknum sínum.

Heimildaskrá

Anna Magnea Hreinsdóttir og Arna Hólmfríður Jónsdóttir. (2023). Lýðræðisleg forysta í leikskólum. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/netla.2023.8

Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð. (2021). Upplifun barna af leikskóladvöl: „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf “ Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/netla.2021.12

Anna Magnea Hreinsdóttir, Pála Pálsdóttir og Sigrún Grétarsdóttir. (2024). Leikur og þátttaka barna í leikskólastarfi: Stuðningur deildarstjóra og annars starfsfólks. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/netla.2024/1

Bae, B. (2012). Children and teachers as partners in communication: Focus on spacious and narrow interactional patterns. International Journal of Early Childhood, 44(1), 53–69. https://doi.org/10.1007/s13158-012-0052-3

Behrendt, M. J. og Franklin, T. (2014). A review of research on school field trips and their value in education. International Journal of Environmental and Science Education, 9(3), 235–245. https://doi.org/10.12973/ijese.2014.213a

Berglind Rós Magnúsdóttir. (2016). Skóli án aðgreiningar: Átakapólar, ráðandi straumar og stefnur innan rannsóknarsviðsins. Í Dóra S. Bjarnason, Hermína Gunnþórsdóttir og Ólafur Páll Jónsson (ritstjórar), Skóli margbreytileikans: Menntun og manngildi í kjölfar Salamanca (bls. 67–94). Háskólaútgáfan.

Braun, V. og Clarke, V. (2021). Thematic analysis: A practical guide. Sage.

Clark, A. (2023). Slow knowledge and the unhurried child: Time for slow pedagogies in early childhood education. Routledge.

Corsaro, W. A. (2003). We’re friends, right?: Inside kids’ culture. Joseph Henry Press.

Dewey, J. (2000a). Hugsun og menntun (Gunnar Ragnarsson, þýðandi). Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands (frumútgáfa 1910).

Dewey, J. (2000b). Reynsla og menntun (Gunnar Ragnarsson, þýðandi). Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands (frumútgáfa 1938).

Edwards, C. (2011). Teacher and learner, partner and guide: The role of the teacher. Í C. Edwards, L. Gandini og G. Forman (ritstjórar), The hundred languages of children (3. útgáfa, bls. 147–172). Praeger.

Edwards, C., Gandini, L. og Forman, G. (2012). The hundred languages of children: The Reggio Emilia experience in transformation (3. útgáfa). Praeger.

Eyrún María Rúnarsdóttir og Svava Rán Valgeirsdóttir. (2019). „Þeir leika saman og eru glaðir, það er bara svo gott“: Félagsleg tengsl og vinátta leikskólabarna af erlendum uppruna. Sérrit Netlu 2019 – Menntun barna í leikskóla og á yngsta stigi í grunnskóla. https://doi.org/10.24270/serritnetla.2019.35

Guðrún Alda Harðardóttir og Baldur Kristjánsson. (2013). Þátttaka barna í ákvarðanatöku í leikskólastarfi. Sérrit Netlu 2013 – Fagið og fræðin. https://netla.hi.is/serrit/2013/fagid_og_fraedin/003.pdf

Guðrún Kristinsdóttir. (2017). Þátttaka barna í vísindarannsóknum: Almenn leiðsögn. Háskóli Íslands.

Guest, G., Namey, E. E. og Mitchell, M. L. (2013). Collecting qualitative data: A field manual for applied research. Sage. https://doi.org/10.4135/9781506374680

Hafdís Guðjónsdóttir. (2011). Rýnt í vinnubrögð starfendarannsókna: Ólíkar leiðir við gagnaöflun. Ráðstefnurit Netlu – Menntakvika 2011. https://netla.hi.is/serrit/2011/menntakvika2011/010.pdf

Hafþór Guðjónsson. (2011). Kennarinn sem rannsakandi. Ráðstefnurit Netlu – Menntakvika 2011. https://netla.hi.is/serrit/2011/menntakvika2011/011.pdf

Hart, R. A. (1992). Children’s participation: From tokenism to citizenship. UNICEF International Child Development Centre.

Hart, R. A. (1997). Children’s participation. Routledge.

Háskóli Íslands. (2019). Siðareglur. https://www.hi.is/haskolinn/sidareglur

Hjördís Hafsteinsdóttir, Jóhanna T. Einarsdóttir og Iris Edda Nowenstein. (2022). Íslenskukunnátta tvítyngdra barna: Tengsl staðlaðra málþroskaprófa og málsýna. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://netla.hi.is/greinar/2022/alm/08.pdf

Ince, A. og Kitto, E. (2019). A practical guide to action research and teacher enquiry. Routledge.

Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir. (2022). Starfendarannsóknir til starfsþróunar leikskólakennara: Ávinningur og áskoranir. Tímarit um uppeldi og menntun, 31(2), 65–86. https://doi.org/10.24270/tuuom.2022.31.9

Jóhanna Einarsdóttir. (2006). Rannsóknir með börnum: Aðferðir – áskoranir – álitamál. Í Úlfar Hauksson (ritstjóri), Rannsóknir í félagsvísindum (bls. 765–777). Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.

Jóhanna Einarsdóttir. (2008). „Við megum ráða þegar við erum búin með bækurnar“: Reynsla barna í 1. bekk grunnskóla. Uppeldi og menntun, 17(2), 9–30. https://timarit.is/page/5016477#page/n7/mode/2up

Karaca, N. H., Şenol, F. B., Akyol, T. og Aral, N. (2016). Field trips in pre-school education. Uluslararası Sosyal Araştırmalar Dergisi / The Journal of International Social Research, 9(45), 590–597. https://www.sosyalarastirmalar.com/articles/field-trips-in-pre--school-education.pdf

Kemmis, S., McTaggart, R. og Nixon, R. (2014). The action research planner: Doing critical participatory action research. Springer.

Kisiel, J. (2005). Understanding elementary teacher motivations for science fieldtrips. Science Education, 89(6), 936–955. https://doi.org/10.1002/sce.20085

Kristín Norðdahl. (2016). Hlutverk útiumhverfis í námi barna. Sérrit Netlu 2016 – Um útinám. https://netla.hi.is/serrit/2015/um_utinam/05_15_utinam.pdf

Lundy, L. (2007). ‘Voice’ is not enough: Conceptualising article 12 of the United Nations convention on the rights of the child. British Educational Research Journal, 33(6), 927–942. https://doi.org/10.1080/01411920701657033

Lög um leikskóla nr. 90/2008.

Lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 19/2013. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2013019.html

McNiff, J. (2016). You and your action research project (4. útgáfa). Routledge.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. (e.d.). Aðalnámskrá: Leikskóli. https://www.adalnamskra.is/leikskoli

Reykjavík. (e.d.). Vettvangsferðir leikskólabarna. https://menntastefna.is/tool/vettvangsferdir-leikskolabarna/

Rinaldi, C. (2005). In dialogue with Reggio Emilia: Listening, researching and learning (2. útgáfa). Routledge.

Sahani, C. og Prakasha, G. S. (2025). Opportunities and challenges while conducting field trips to the museum: A narrative review. International Journal of Evaluation and Research in Education, 14(2), 871–878. https://doi.org/10.11591/ijere.v14i2.29297

Sara M. Ólafsdóttir og Jóhanna Einarsdóttir. (2017). „Þeir vilja ekki leika, bara tala saman“: Sýn barna á hlutverk fullorðinna í leik. Sérrit Netlu 2017 – Innsýn í leikskólastarf. https://netla.hi.is/serrit/2017/innsyn_leikskolastarf/002.pdf

Smidt, S. (2012). Introducing Malaguzzi. Routledge.

Snæfríður Þóra Egilson. (2016). Skólaþátttaka fatlaðra barna: Viðvera tryggir ekki þátttöku. Í Dóra S. Bjarnason, Hermína Gunnþórsdóttir og Ólafur Páll Jónsson (ritstjórar), Skóli margbreytileikans: Menntun og manngildi í kjölfar Salamanca (bls. 117–135). Háskólaútgáfan.

Umboðsmaður barna. (2019). Þátttaka barna í stefnumótun og ákvörðunum. https://www.barn.is/media/skyrslur/Thatttaka-barna-i-stefnumotun-og-akvordunum_skyrsla-2020.pdf

Vecchi, V. (2010). Art and creativity in Reggio Emilia: Exploring the role and potential of ateliers in early childhood education. Routledge.

Wallis, N., Bertram, T. og Pascal, C. (2025). Meet me at the museum: Creative methodologies for understanding young children’s museum experiences. European Early Childhood Education Research Journal, 33(5), 804–819. https://doi.org/10.1080/1350293X.2025.2489043

Niðurhal

Útgefið

2026-05-13

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 > >>