fjarnám, gæði, tæknilegur undirbúningur kennara, samskipti, Menntaskólinn á Egilsstöðum
Útdráttur
Á síðustu árum hefur um helmingur framhaldsskóla á Íslandi boðið upp á fjarnám í ýmsum myndum, þar á meðal Menntaskólinn á Egilsstöðum. Fjarnámið þar hefur vaxið jafnt og þétt og hafa nemendur lýst yfir ánægju sinni meðal annars með spannakerfið, skipulag og samskipti við kennara. Erfitt hefur reynst að meta gæði fjarnáms á heimsvísu en þó hafa verið þróaðir ýmsir staðlar og má finna algeng þemu varðandi hæfni og hugarfar sem æskilegt er að kennarar búi yfir til að ná árangri í kennslu á netinu. Markmið greinarinnar er að varpa ljósi á hvað stuðlar að auknum gæðum fjarnáms og farið er sérstaklega yfir samskipti, námsumhverfi og skipulag ásamt tæknilegum undirbúningi kennara. Einnig er fjallað um fjarnám Menntaskólans á Egilsstöðum og sagt frá könnun um fjarnám sem lögð var fyrir kennara skólans haustið 2021. Alls 19 kennarar skólans sem kenna eða hafa kennt áður í fjarnámi tóku þátt í könnuninni og helstu niðurstöður sýna styrkleika kennara varðandi skipulag og samskipti við nemendur en veikleika þegar kemur að samskiptum milli nemendanna sjálfra. Aðeins tæp 16% þátttakenda taldi sig hafa fengið fullnægjandi menntun um kennslu fjarnema í kennaranámi og hafa áhyggjur verið uppi um skort á nauðsynlegum undirbúningi kennara sem kenna í fjarnámi. Greinin varpar enn frekar ljósi á mikilvægi þess að kennarar öðlist þá hæfni og þekkingu sem kennsla í fjarnámi krefst.
Um höfund (biography)
Marta Kristín Sverrisdóttir
Marta Kristín Sverrisdóttir (marta@me.is) lauk BA-prófi í sálfræði við Háskólann á Akureyri árið 2020 og stundar meistaranám í menntun framhaldsskólakennara við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem leiðbeinandi í Menntaskólanum á Egilsstöðum frá 2020.