Margbreytileiki brotthvarfsnemenda

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2019.11

Lykilorð:

brotthvarf, margbreytileiki, skuldbinging nemenda, framhaldsskóli, áhættuþættir, forvarnir

Útdráttur

Ungmenni sem ekki ljúka framhaldsskóla standa verr að vígi á vinnumarkaði og eru líklegri til að eiga í ýmsum félagslegum og heilsutengdum vanda síðar meir. Brotthvarf úr framhaldsskóla er mikið á Íslandi samanborið við önnur OECD ríki. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að greina ólíka hópa nemenda sem hætta í framhaldsskóla, en rannsóknir á þessu sviði eru gagnrýndar fyrir að líta á brotthvarfsnemendur sem einsleitan hóp. Rannsókn sem þessi hefur ekki verið gerð áður á Íslandi og mun varpa mikilvægu ljósi á mismunandi einkenni þeirra sem hverfa frá námi. Um er að ræða yfirgripsmikla langtímarannsókn sem byggist á spurningakönnun, upplýsingum um námsárangur í 10. bekk og námsferil í framhaldsskóla. Hún hófst árið 2007 og nær til 3.470 nemenda á aldrinum 16 til 20 ára úr öllum almennum framhaldsskólum landsins. Úrvinnsla byggist á klasagreiningu. Athyglinni er beint að skuldbindingu framhaldsskólanemenda til náms og skóla, líðan þeirra og fyrri námsárangri. Niðurstöður benda til þess að greina megi fjóra ólíka brotthvarfshópa; félagslynda, fráhverfa, vanmegnuga í námi og í vanlíðan. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi þess að í forvörnum og inngripi sé tekið mið af mismunandi einkennum brotthvarfsnemenda.

Um höfund (biographies)

  • Kristjana Stella Blöndal
    Kristjana Stella Blöndal (kb@hi.is) er dósent í MA-námi í náms- og starfsráðgjöf, Félagsfræði-, mannfræðiog þjóðfræðideild Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Kristjana hefur um árabil stundað rannsóknir á námsferli og námsgengi ungmenna, brotthvarfi þeirra frá námi og skilvirkni framhaldsskóla. Hún er virkur þátttakandi í alþjóðlegum rannsóknum á þessu sviði.
  • Atli Hafþórsson
    Atli Hafþórsson (atlihaf@gmail.com) lauk BA-prófi í þjóðfélagsfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2009 og MA-prófi í aðferðafræði frá Háskóla Íslands árið 2017. Undanfarin misseri hefur Atli verið sjálfstætt starfandi rannsakandi og sinnt rannsóknarstörfum við Háskóla Íslands. Atli hefur tekið þátt í rannsóknum á sviði heilbrigðis- og menntavísinda auk rannsókna tengdra íslenskum sjávarútvegi.

Niðurhal

Útgefið

2020-02-03

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)