Stýrinet: Nýsköpun innan Stjórnarráðsins. Nýtt verklag í samstarfi milli stjórnsýslustiga

Authors

  • Héðinn Unnsteinsson
  • Pétur Berg Matthíasson

DOI:

https://doi.org/10.13177/irpa.b.2012.8.1.1

Abstract

Í þessari grein er vakin athygli á nýju samskiptaformi sem er að ryðja sér til rúms innan stjórnsýslunnar með tilkomu stefnumörkunarinnar Ísland 2020. Stýrinet (e. governance network) er hugtak sem æ fleiri fræðimenn og embættismenn hafa skoðað síðastliðin tíu ár sem mögulegan valkost við stigveldisstjórnsýslu og útvistaða stjórnsýslu, sem varð vinsæl í lok tíunda áratugarins með tilkomu nýsköpunar í ríkisrekstri (New Public Management). Samstarf þvert á ráðuneyti eru ekki ný af nálinni en með stefnuskjalinu Ísland 2020 eru sett fram verkefni sem krefjast annars konar vinnubragða en tíðkast hafa áður innan stjórnsýslunnar. Ísland 2020 hefur ýtt bæði undir samhentari stjórnsýslu með auknu samstarfi en krefst þess jafnframt að starfshópar starfi í anda stýrineta svo að sem mestur árangur megi verða af starfi þeirra. Í greininni er stýrinetskerfi, sem sett var upp innan Stjórnarráðsins og landshlutasamtaka í tengslum við sóknaráætlanir landshluta, skoðað. Tilraun er gerð til að meta hvort stýrinet séu betur til þess fallin en annars konar samstarf til að skila markvissari árangri við lausn verkefna.

Author Biographies

Héðinn Unnsteinsson

Stefnumótunarfræðingur, forsætisráðuneytinu.

Pétur Berg Matthíasson

Stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur, fjármálaráðuneytinu.

Published

2012-06-15

How to Cite

Unnsteinsson, H., & Matthíasson, P. B. (2012). Stýrinet: Nýsköpun innan Stjórnarráðsins. Nýtt verklag í samstarfi milli stjórnsýslustiga. Icelandic Review of Politics & Administration, 8(1). https://doi.org/10.13177/irpa.b.2012.8.1.1

Issue

Section

Articles and speeches

Most read articles by the same author(s)

1 2 > >>